Gosið í Eyjafjallajökli

Ég var að setja inn nokkrar myndir  af eldgosinu í albúm sem heitir NÁTTÚRAN.   Ég er búinn að skoða gosið núna tvisvar í nálægð. Fór fyrt á fimmtudaginn í síðustu viku og byrjaði á því að fara upp á Þórólfsfellið og tók þar nokkrar myndir ásamt því að setja upp örbylgjuloftnet með veðurstofumönnum en síðan var haldið  leið í Þórsmörkina á vaði yfir Markarfljótið sem er á móts við Húsadalinn. Við héldum inn í Goðaland og var stefnan tekin á Hrunagilið og ætluðum við upp austur gilbarminn og komast þannig að hraunfossinum en lentum á um 100 metra háu hengiflugi og urðum frá að hverfa. Fórum niður í gilið og að hraunendanum sem rann þar á um 2 km hraða og var mjög gaman að sjá nýtt landslag veltast yfir það gamla og þar með hurfu okkar fótspor og sjást aldrei meira. Síðan var haldið upp vestur hlíð gilsins og reyndist hún líka ófær þannig að við héldum heim fullir af sælu . Á miðvikudaginn héldum við síðan gangandi upp frá Básum og lá leið okkar upp á Bröttufönn. Þegar á Morinsheiðina var komið blasti við okkur hraunfossinn í allri sinni dýrð og stöldruðum við þar um stund við myndatökur. Síðan lá leið okkar yfir Heljarkamb og upp Bröttufönnina sem er ekki sú skemmtilegasta að ganga :-) þegar við erum að staulast þetta upp fréttum við að ný sprunga sé að myndast og var það til þess að enn var hert á göngunni og komumst við upp að lokum og sáum þetta í allri sinni dýrð eldri gýgurinn svipaður að afli en nýja sprungan að bæta við sig og var það ótrúlega falleg sjón og hrikaleg. Þetta er trúlega sá dagur sem seint líður úr mynni okkar sem þarna stóðum því fegurðin var stórkostleg.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Svansson

Höfundur

Brynjar Svansson
Brynjar Svansson

Útivistarmaður og veiðimaður á allt sem leyfilegt er að veiða. Ég bý á Hellu og á þjú börn Hjördísi, Atla  og Dagnýju.  - brysva@isl.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Snæfellsjökull 090612 028
  • Heimleið
  • Grunnavík
  • Ófæran við Maríuhorn
  • Maggi, Áslaug og Gummi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband