Hornstrandir

Ég fór með Ferðafélagi Íslands í ferð á Hornstrandir 30/6 – 6/7 ásamt 11 öðrum. Á fyrsta degi var siglt frá Bolungavík að Sæbóli í Aðalvík og var hópurinn settur þar í fjöruna og hófst gangan þar með í björtui veðri og sólarglennu. Í fyrsta áfanga var gengið á fjallið Darra en .Þar uppi eru leifar af radarstöð hersins sem hér var. Síðan lá leið okkar eftir Skálardalsbrúninni en það er brúnin fyrir ofan Grænuhlíðina, og síðan eftir Lækjarfjallinu að stígnum sem liggur til Hesteyrar en inn á hann komum við fyrir ofan Sléttu. Við komum til Hesteyrar og gistum í gamla læknishúsinu og höfðum þá lagt að baki 21,5km þann daginn.

 Á öðrum degi var haldið af stað frá Hesteyri og var stefnan tekin á Búðabæ í Hlöðuvík. Gengið var um Hesteyrarbrúnir og stefnan tekin á Kjaransvíkurskarðið sem er um 447m hátt þar sem gengið er yfir það. Eftir því sem við nálguðumst skarðið þá bæði jókst vindurinn og og rigningin skall á okkur af öllu afli sem bleytti hópinn mismikið. Ég tel að vindurinn hafi verið um 15m/sek og enn hvassari í hviðum. En hópurinn hafði þetta nú allt og það var aðeins lygnara á okkur í Kjaransvíkinni en þar gátum við nú stiklað yfir ánna á rekaviðardrumbum en við vorum ekki eins heppin í Hlöðuvíkinni en þar þurftum við að vaða. Við komum í Búðabæ um kvöldmat eftir um 17,5 km göngu. Það eru um 14,5 km ganga frá Hesteyri í fjöruna í Kjaransvík.

 Þriðji dagurinn fór að mestu í afslöppun enda ekki tófu út sigandi eins og við sögðum því það var ekki fyrr en seinni part dagsins sem við sáum tófuna sem bjó undir húsinu við hliðina ásamt yrðlingum sínum koma út. En þess má geta að um kvöldið og nóttina þá var fárviðri á okkur og skalf húsið allt og nötraði og vorum við í mesta basli við að halda kamínunni í gangi því það sló stanslaust niður í strompinn sem olli brælu í húsinu og leið okkur eins og hangikjöti. Okkur tókst ekki að komast á Hælavíkurbjarg í þessari ferð.

Fjórði dagurinn rann upp og var veðrið þolanlegt en skýjahæð var um 100 – 200m svo að ekki sást mikið upp til fjallana. Leið okkar lá frá Búðabæ upp Skálina um Fannarlág í Atlaskarð sem er 337m hátt niður í Rekavík bak Höfn. Lækirnir á þessari leið höfðu breyst í ár svo að við þurftum að vaða í stað þess að stikla yfir þær á steinunum. Hann var blautur þessi dagur og gátum við borðað nestið okkar í slysavarnarhúsinu í Hornvík. Við héldum yfir Hafnarósinn, yfir Kýránna og upp í Kýrskarð 340m og vorum komin um kvöldmat í Hornbjargsvita en þar átti að bíða okkar heit kjötsúpa. Húsráðandi hafði brugðið sér í bæinn og komst ekki til baka svo að við urðum að elda sjálf og hita upp húsið sem var ískalt, en við komum gamla Listernum í gang og húsið hitnaði. Þessi leið var 16,5 km. Ekki tókst okkur að sjá Hornbjarg vegna þoku.

Á fimmta degi gengum við frá Hornbjargsvita upp á Axarfjall til Smiðjuvíkur eftir bjargbrúninni en það sást ekki mikið af því. Yfir Smiðjuvíkurháls í Barðsvík og upp í Göngumannaskörð 373m sem var hæsti punktur á þessari leið en hún er mikið upp og niður. Vorum komin til Bolungavíkur níu um kvöldið eftir 19,5 km göngu.Það var ákveðið að stytta ferðina um einn dag vegna slæmrar veðurspár svo að við lögðum af stað um morguninn eftir frá Bolungavík og þurftum að vera á útflæðinu við Furufjarðarófæru um 10:30 til að komast þar framhjá. Leið okkar lá um Furufjörð þar sem við skoðuðum Bænahúsið og yfir Skorarheiði til Hrafnfjarðar og þar sótti báturinn okkur við slysavarnarskýlið, þessi leggur er14,6 km. Þess skal getið hér að ég skoðaði Grunnvíkingabók og sá þar að það var búið í öllum víkum og vogum frá vitanum til Furufjarðar en það var harðbýlt frá vitanum að Barðsvík vegna skorts á undirlendi. Í þessari ferð var með okkur Helgi Daníelsson og orti hann nokkrar vísur sem ég birti hér að neðan.   

Við gengum upp á dyngju Darra

 draugalegar kynjar þar

við rústir Breta byssur marra

breskar fornar stríðsminjar 

Við getum ei bætt ofnsins böl

bræla í lungu og sinni

það veldur okkur kvilla og kvöl

að kynda í reyk hér inni. 

Í Rekavík Helgi stakkst á sund

straumurinn hrakti hann í strand

lá í ánni stutta stund

steig svo rennblautur í land 

Við misstum göngustafi í straum

þeir stefndu út með bárunni

aldan háa gaf þeim gaum

við gripum þá á öldunni 

Yfir Hafnarósinn óðum við

 öll í skóm og sokkum

vatnið náði kalt í kvið

kuldahrollur fór um okkur

Í Látravík í köldum vita

varla var það gott

við glæddum loks upp góðan hita

Guðný kokkaði kjöt í pott

kærar þakkir mikið var það gott 

Gistum hér í roki og regni

réttum okkar hag

þurrkuðum föt af fremsta megni

fjórði júlí ég er 72 ára í dag 

Frá Hornbjargsvita höldum við

höfum þurrkað fötin

sól að gömlum góðum sið

gægist í skýjagötin.

Yfir dembist þokan grá þökkum gistinguna 

         

Myndir úr ferðinni eru í albúmi sem heitir Hornstrandir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Þetta hefur verið aldeilis flott ferð hjá  þér, hefði kannske getað hitt á þig hefði ég vitað um þig.

kveðja Halli

Hallgrímur Óli Helgason, 15.7.2010 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Brynjar Svansson

Höfundur

Brynjar Svansson
Brynjar Svansson

Útivistarmaður og veiðimaður á allt sem leyfilegt er að veiða. Ég bý á Hellu og á þjú börn Hjördísi, Atla  og Dagnýju.  - brysva@isl.is

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Snæfellsjökull 090612 028
  • Heimleið
  • Grunnavík
  • Ófæran við Maríuhorn
  • Maggi, Áslaug og Gummi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband