5.5.2007 | 12:56
Þessi stjórnmál.....
Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og
einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?"
Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á
þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig
Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna
skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum
svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað
barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina.
Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og
saman. þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem
pabbi hans sagði honum.
Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn
í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af
henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína
sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst.
Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.
Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.
Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji
hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. þá
sagði Nonni litli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er
Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum
skít...
Um bloggið
Brynjar Svansson
Ýmsir tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ, elsku frændi. Gaman að sjá þig hérna! Kíkti á börnin þín, náfrændfólk mitt, og þetta eru þvílíkar dúllur!
Til hamingju með mömmu þína, hún á afmæli í dag, eins og mamma mín!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.5.2007 kl. 22:21
Ha ha aha
Ester Sveinbjarnardóttir, 8.5.2007 kl. 07:47
Já og ekki gleyma henni Berglindi frænka góð. Hún átti afmæli þann 4 maí.
En....takk fyrir síðast frændi
Það var mjög gaman að hitta þig á skrallinu 
Bryndís Halldóra Jónsdóttir, 14.5.2007 kl. 10:22
Hann er góður þessi brandari :-)
Mikið er nú gaman að sjá allar frænkurnar okkar hjá þér Binni minn.
Sendi ykkur öllum kærar kveðjur frá Californíu, átti skemmtilega daga með frændfólkinu okkar þar.
Berglind Johnsen-Svansdottir (IP-tala skráð) 15.5.2007 kl. 01:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.