19.5.2007 | 17:28
Dranghlíðarfjall
Jæja byrjaði daginn á að gá til veður því að ég ætlaði að labba á Heklu en varð að hætta við það vegna þess hversu lágskýjað var og svo var vindurinn ekki til að bæta það svo að ég ákvað að kíkja á textavarpið og sá þar að það var nokkuð gott veður undir A-Eyjafjöllum svo að ég valdi Drangshlíðarfjall. Á leiðinni þangað sá ég branduglu en það er alltaf gaman að sjá uglur. Ég labbaði á fjallið og var þetta frekar brött ferð upp hjá mér. Þegar upp var komið sást vel inn á Mýrdalsjökul og suður að Dyrhólaey en Vestmannaeyjar voru í rykmekki. Einn foss sá ég sem ég hef aldrei séð áður og er hann upp undir Eyjafjallajökli í Kaldklifsgilinu og nánast beint í norður frá Drangshlíðardal og svo að ég útskýri þetta aðeins þá er Drangshlíðarfjall á vinstri hönd ef staðið er beint fyrir framan Skógafoss og horft á hann.
Um bloggið
Brynjar Svansson
Ýmsir tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er dálítill Reynir Pétur í þér frændi ?
Duglegur að ganga úti í náttúrunni 
Annað en ég. Vappa bara í sömu sporunum hér á gólfinu heima hjá mér. hahahaha.... Verð að fara að breyta þessu
Bryndís Halldóra Jónsdóttir, 19.5.2007 kl. 20:23
Ég var stödd undir Eyjafjöllunum fyrir tæpum 2 vikum síðan og hitt einmitt einn sem fór þessa sömu leið og þú. Honum fannst fossinn fallegur og vel geymdur þarna í fjallasölum. ;)
Ester Sveinbjarnardóttir, 23.5.2007 kl. 02:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.