12.4.2009 | 14:14
Þríhyrningur
Ég og Bella drifum okkur eldsnemma á fætur í morgun og fórum til fjalla. Við fórum á Þríhyrning einu sinni enn í frábæru veðri, skyggni var bara nokkuð gott og sáum við yfir stóran hluta suðurlands. Við gengum á þrjá tinda á ferð okkar sem eru útverðir Flosadals. Dalurinn er skírður eftir Flosa nokkrum úr Njálssögu en hann beið víst þarna í dalnum með eldspýturnar sínar áður en hann fór að kveikja í á Bergþórshvoli. Göngufærið á fjallinu var með því albesta enda fraus þar í nótt og slapp ég við alla drullu. Ætla svo að slappa af í dag og bara hafa það huggulegt
Um bloggið
Brynjar Svansson
Ýmsir tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég var nú einmitt að læra þetta í Njálu ...
Dagný (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.